Um verkefnið

Við erum að læra að þekkja fugla og lífshætti þeirra, telja, taka eftir ýmsu í umhverfinu, skrá og vinna úr gögnum. Okkur til aðstoðar eru kennarar og sérfræðingar frá HÍ.  Þannig leggjum við okkar að mörkum í stærri rannsókn sem er á vegum HÍ og er markmiðið að meta áhrif loftslagsbreytinga á fugla.  Fuglarnir endurspegla víðtækari breytingar á vistkerfum og lífsskilyrðum manna og henta vel því þeir eru frekar auðtaldir miðað við ýmislegt annað. Með reglubundnum talningum er hægt að sjá bæði breytingar á stofnstærðum og enn fremur breytingar á tímasetningu farflugs. Verið er að vakta tvo ferla sem eru mislangir, annar sýnir breytingar yfir árið (og hver árgangur sér þær breytingar) og svo eru það breytingar sem verða á löngum tíma.  (upplýsingar Tómas Grétar Gunnarsson)

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *